Það er allavega ennþá líf hinum megin við sjóinn ;)
lol...já veistu Steinunn ég kíki hér inn endrum og sinnum...alltaf að vonast eftir að fá fréttir af Íslandsbúum :) við erum ekki alveg að blómstra hér á blogginu eins og stefnt var að... ég held meðal annars að fólk sé búið að gleyma notendanafni og lykilorði. Kannski ráð að senda aftur þær upplýsingar á e-mail fólks.
Annars að þá er allt að gerast hér í Parísinni. Komst inn í góðan tónlistarskóla, spila í danssýningum, hljómsveitum, tíói, diskótekum og upptökum hér og þar, inporversera með Afríkubúum, vinn m.a. fyrir Dior-Harley Davidon-Jean Paul Gaultier og fleiri, alltaf í aikido (s.s. loksins byrjuð í bardagalisium)....og svo er mín búin að finna hvað minni langar að að læra í lífinu ;) Er s.s. byrjuð í mínu námi sem er mússikþerapía, og er ekkert smá sátt. Þetta er nám sem tekur 2 og 1/2 ár og í endann mun ég vinna á Sjúkrahúsi í 30 daga og gera a.m.k. 100 bls ritgerð sem ég þarf að flytja fyrir framan dómnefnd...ef það gengur upp mun ég verða mússikþerapisti að því loknu :)
Já svo að það er í nógu að snúast hér en ég hlakka samt til að kíkja á frónið um jólin. Kva, er ekki málið að halda e-ð smá partí hjá e-m þar sem að flestir verða í bænum?? (erum við ekki annars frekar mörg sem erum að flakkast?)
Vonast nú til að sjá ykkur sem flest yfir hátíðarnar!
(kannski erum við bara að skrifast á Sveinunn ;)....spennandi að sjá hvort að einhver lifni við og skrifi nokkrar línur .......
Á bientot
Heiða
