Friday, December 09, 2005

Það er allavega ennþá líf hinum megin við sjóinn ;)

lol...já veistu Steinunn ég kíki hér inn endrum og sinnum...alltaf að vonast eftir að fá fréttir af Íslandsbúum :) við erum ekki alveg að blómstra hér á blogginu eins og stefnt var að... ég held meðal annars að fólk sé búið að gleyma notendanafni og lykilorði. Kannski ráð að senda aftur þær upplýsingar á e-mail fólks.
Annars að þá er allt að gerast hér í Parísinni. Komst inn í góðan tónlistarskóla, spila í danssýningum, hljómsveitum, tíói, diskótekum og upptökum hér og þar, inporversera með Afríkubúum, vinn m.a. fyrir Dior-Harley Davidon-Jean Paul Gaultier og fleiri, alltaf í aikido (s.s. loksins byrjuð í bardagalisium)....og svo er mín búin að finna hvað minni langar að að læra í lífinu ;) Er s.s. byrjuð í mínu námi sem er mússikþerapía, og er ekkert smá sátt. Þetta er nám sem tekur 2 og 1/2 ár og í endann mun ég vinna á Sjúkrahúsi í 30 daga og gera a.m.k. 100 bls ritgerð sem ég þarf að flytja fyrir framan dómnefnd...ef það gengur upp mun ég verða mússikþerapisti að því loknu :)

Já svo að það er í nógu að snúast hér en ég hlakka samt til að kíkja á frónið um jólin. Kva, er ekki málið að halda e-ð smá partí hjá e-m þar sem að flestir verða í bænum?? (erum við ekki annars frekar mörg sem erum að flakkast?)

Vonast nú til að sjá ykkur sem flest yfir hátíðarnar!

(kannski erum við bara að skrifast á Sveinunn ;)....spennandi að sjá hvort að einhver lifni við og skrifi nokkrar línur .......
Á bientot
Heiða

Monday, October 24, 2005

Hmm, dauði

Vá, hvað þessi síða er ROSALEGA dauð!!
En það hljóta allir að hafa frá e-u að segja, það er svo langt síðan e-r hefur bloggað!! Meira en ár og þá var það líka ég... Júhú!! Svo að ég get alveg eins greint frá minni stöðu í lífinu: ég er enn að vinna í body shop og bý enn í foreldrahúsum, spennandi, ekki satt? Það hlýtur e-r að geta sagt e-ð meira spennandi?!?!
Ég hélt líka að Erna ætlaði að hafa e-ð massa partý í mega penthouse íbúðinni sinni, var það ekki planið? Missri ég kannski bara af því....?
Till later (ef það er þá e-r sem enn kíkir hér inn!!) Steinunn

Wednesday, September 29, 2004

Shame on you!

Það er greinilega e-m illa við það að Palli tjái sig, því að pósturinn hans er alltaf að hverfa! Svo að ég ætla að setja stopp á það svo að ég verð admin og ræð öllu, múhahaha!
Annars var ég að komast að því að samband innan veggja MR vekur mikla athygli, ég bara gerði mér ekki grein fyrir því! Fólk sem hefur aldrei yrt á mig að fyrra bragði áður er e-ð að labba upp að mér og spyrja hvort við Elli séum ennþá saman. Kannski er það bara vegna þess hver allir eru sólgnir í kjaftasögur, til dæmis lesa allir séð og heyrt en það viðurkennir það enginn! Fólk er alltaf til í að heyra e-ð ljótt um aðra eða hvað fór úrskeiðis hjá hinum og þessum. En svona er mannlegt eðli, ég er ekkert skárri sjálf!
Annars er Halldór búinn að lofa að blogga drukkinn,hvenær er maður fyrir framan tölvu fullur?????
En endilega haldið áfram að blogga!
Steinunn

Wednesday, September 22, 2004

London baby yeah!!!

Hello babes!
Nú er mín bara komin til London og ég ætla að vera hér að minnsta kosti fram að jólum. Ég er au-pair hjá ísl.fjölskyldu og er að passa einn 7 ára strák. Það er heavy gaman hérna því Ingibjörg vinkona mín er hérna í London líka og svo erum við búnar að kynnast fullt af fólki. Fórum einmitt að djamma um helgina og vorum 7 saman:) Fórum á stað sem hét SOUND á Leicester square sem var á þremur hæðum og þar var sko dansað:) ....og það var engin smá athygli sem við stöllur fengum, úfff maður!! Það var mikið drukkið og ég er ekki frá því að sumir hafi verið orðnir soldið skrautlegir undir lokin!! en nóg af djammi. Á sunnudeginum fórum við þunnar og frekar ónýtar að versla á OXFORD STREET og svo fórum við í LONDON EYE og þar varð ég sko lofthrædd. (Þetta er parísarhjól sem nær örugglega svona 200 metra upp í loft) Svo fór ég í viðtal í Bromley College í gær og ég byrja í skólanum á næsta mánudag. Maður kann nú reyndar alveg ágæta ensku en mig langar að læra að tala hana betur og svo er þetta nú aðallega gert í þeim tilgangi að kynnast nýju fólki.
En nú þarf ég að rjúka!! Skrifa meira seinna, bæó:)

Sunday, September 19, 2004

best að tjá sig aðeins

Þar sem þessi ofvirki og samstillti bekkur tók upp á því blogga fannst mér við hæfi að eini alvöru ævisagnaritarinn myndi nú tjá sig. Eg hef nú ekki ætlað mér að gerast bloggari þar sem bloggarar hafa nú aldrei verið ofarlega í virðingarstiganum hjá mér og það þarf nú mikið til, þar sem ég er einstaklega umburðarlyndur maður. ég var beittur miklum þrýstingi og hef látið undan honum. Ég verð verð nú samt að kvarta undan einu. Mér blöskrar sú staðreynd að einungis ein stúlka í bekknum skuli hafa skráð sig í húsmæðraskólann. Steinunn þú átt allt mitt hrós skilið. það eru grundvallar mannréttindi að allir karlmenn eigi eina konu sem kann öll húsverk. Það er meira að segja ein mamma í hópnum, það er nú frekar óábyrgt að af henni að læra ekki öll þessi þarfaverk. það má vel vera að sveitafólk geri minni kröfur um þrifnað ( þessu er ekki beint beinlínis til þín Máney) en þetta er kæruleysi. svo verð ég að furða mig á öllum þessum ferðalögum hjá bekkjarsystkinum mínum. Lærandi frönsku og svoleiðis og það eru tæp tvö ár síðan ég tók stúdentspróf í henni. annars er ég bara að stúdera lög í HÍ og kann bara ágætlega við mig, samt er ég nú bara á því að MR hafi nú bara verið ágætur, allaveganna rólegri. Þetta magn af efni er ekki hví.... manni bjóðandi. Meðan ég ligg sveittur í bókhlöðunni er fólk bara að ferðast um allan heim. Eg verð nú að viðurkenna að þá er nú smá öfund í gangi og eftir að vera byrjaður í HÍ sé ég að manni liggur ekki eins mikið á að klára þetta helvíti, það eru allir hálf fertugir og frekar óspennandi. En annars held ég að ég fari að halda kjafti og vona að fólk fari nú að tjá sig, þær voru nú ófáar málpípurnar í bekknum og ef ég nenni þessu þá ættu aðrir að geta það. það væri nú gaman ef skorrdal myndi tjá sig og minnir það mig nú að fólk getur nálgst Skorrdalssögu ef það hefur nú ekki þegar fengið hana. Bara biðja um hana hér og ég sendi einhvern með hana til ykkar eða eitthvað svoleiðis. kveðja, Palli

Tuesday, September 14, 2004

sælir kæru bekkjarfelagar

Vá steinunn þetta er magnað! En það sem væri enn magnaðara...er ef Palli myndi posta!! palli palli palli! koma svo!

En ég ætla að nota tækifærið og minna alla á að ég er enn með faunu-myndirnar ykkar:)..komið endilega í heimsókn og sækið þær. Munið þegar þið vorum í unglingavinnunni að hreinsa beð?? Dreymdi ykkur ekki stundum á nóttunni um arfa?? Allavega mig...og mig er enn að dreyma um þessar faunumyndir! Dreymdi um þær t.d. í nótt! creepy shit....

Ég er annars bara byrjuð í skólanum (LHÍ)..voða gaman. Reyndar líka mjög erfitt! Á hverjum föstudegi eru allir rakkaðir niður, mismikið reyndar ...en engum hrósað. Ég er að vona að þetta sé eins og í hernum þar sem maður er first brotinn niður og svo byggður upp.. stefnir samt ekki í það. Þetta er samt voða kósí! Við á fyrsta ári erum öll saman í risastórum sal, öll í kremju. En..þröngt mega sáttir sitja eins og stóð í gömlu 3-bekkjar stofunni minni... Hver er með sitt borð og stól og svo megum við byggja við það. Ég er t.d. komin með skilrúm, lampa og alls konar dótarí. Ég er líka að hugsa um að bæta e-u í gluggann...sólin skín alltaf á bakið á mér...frá 9-17!! arg! pínu óþægilegt...ég þarf að redda mér e-u ..kannski að ég noti bara faunu-myndirnar sem eru ekki sóttar ! ha?? kannski bara:) neinei

jæja heyri í ykkur:)

Monday, September 13, 2004

jæja best að reyna að vera jafn hörð og Erna ;o)

Já Steinunn mín.........þú færð sko mitt atkvæði sem eilífðarbekkjarráðsmaður ;) stolt af þér stelpa......þar að auki er ég sammála þér, þú ert svo sannalega orðin verðmætari á markaðnum núna ;)....ok Erna mín hér ættla ég að reyna að tjá mig...vilt þú s.s. fá einhverjar vandræðasögur?? Ég veit samt ekki hvort að hún eigi eftir að slá á hitann hjá þér....en ég er bara soddan hrakfallabálkur. Mín var s.s. að flýta sér mjög mikið og strunsaði áfram eins og vanalega......kem að einum löngum gangi (er inní blokk), ætla að kveikja ljósið en hitti ekki, gleymi að það eru ca 5 tröppur framundan og hreinlega steypist niður stigann!!! Alveg eins og í bíómyndunum, (og skelfingarsvipurinn skein af gaurnum fyrir aftan mig). Já, ég hefði svo sannalega viljað grípa í næstu hækju ef hún hefði verið til staðar. :o. það var s.s. ökklinn sem fór í mask og bólgnaði mikið, en núna er hann allur að koma til vona ég :o, (eftir einn mánuð takk fyrir).....Allavega, ég er byrjuð að vinna eins og sumir vissu. Vann fyrir American Express og svo Cisco sem "hotesse d´aceuille" (þjónustistörf, brosistörf og upplýsingastörf o.s.fv.) Það er s.s. sérstök skriftofa t.d. www.charlestown.fr sem býður mér vissar vinnur og ég segi já eða nei...nokkuð hentugt með skóla. Ég er t.d. að fara að vinna á stærstu bílasyningu í Evrópu fyrir Volkswagen í 3 vikur. Svo að á næstu 3 dögum er ég að fara að læra allt í sambandi við þá tegund sem ég á eftir að sjá um...ágætt nokk. Það næstnýjasta er að ég að fara að búa með vini mínum, Christophe, í glæsilegri íbúð, 67m2, hér í París. Fáum hana 25 sept...og er algjörlega með njálg í rassinum... flytja núna strax!! En það nýjasta er að ég kemst inn í skólann, La Sorbonne 4, og byrja í honum 7.okt. Bara asskoti ánægð með það því að ég verð bara ca 20 tíma á viku svo að ég á vonandi eftir að geta unnið með honum...fréttir af tónlist og íþróttum koma seinna...þetta svona mjakast áfram hægt og bítandi.......:) Hey, hver annar er í útlandinu núna?? Og hvað er fólk að gera á fróninu?? Hlakka til að heyra í ykkur gott fólk ;)

Parísarbúinn Heiða :)